Skjaldarmerki
Skjaldarmerki Íslands er silfurlitur kross í heiðbláum feldi, með eldrauðum krossi innan í silfurlita krossinum. Armar krossanna skulu ná alveg út í rendur skjaldarins á alla fjóra vegu. Breidd krossmarksins skal vera 2/9 af breidd skjaldarins, en rauði krossinn helmingi mjórri, 1/9 af breidd skjaldarins. Efri reitirnir skulu vera rétthyrndir, jafnhliða ferhyrningar og neðri reitirnir jafnbreiðir efri reitunum, en þriðjungi lengri.
Skjaldberar eru hinar fjórar landvættir, sem getur í Heimskringlu: Griðungur, hægra megin skjaldarins, bergrisi, vinstra megin, gammur, hægra megin, ofan við griðunginn, og dreki, vinstra megin, ofan við bergrisann.
Skjöldurinn hvílir á stuðlabergshellu.
Nánari upplýsingar um hinar fjórar landvættir má sjá í kafla um sögu Landvættaskjaldarmerkisins
Merki ráðuneyta
Merki ráðuneyta er skjaldarmerkið með heiti viðkomandi ráðuneytis undir merkinu.
Hægt er að sækja merkin þar sem þau eru á nokkrum mismunandi sniðum fyrir prent- og skjámiðla.
Lög og stjórnvaldsfyrirmæli
Skjaldarmerkið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.