Það helsta
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum samanstendur af 50 aðgerðum og ná þær til alls samfélagsins.
Fyrsta stöðuskýrslan um framgang aðgerðanna sem kom út í september 2021 sýnir að:
- 30 aðgerðir eru komnar til framkvæmdar eða þeim lokið. Hafa ber í huga að margar aðgerðir eru þess eðlis að fyrirsjáanlegt er að þær verða í framkvæmd til lengri tíma.
- 17 aðgerðir eru í vinnslu og eru margir verkþættir komnir vel á veg.
- 3 aðgerðir eru í undirbúningi sem felur kortlagningu á stöðu og greinargerðir.
Aðgerðirnar skiptast í þrjá hluta eftir því hvernig þær tengjast skuldbindingum Íslands.
- Losun á beinni ábyrgð Íslands (flokkar A-G): 41 aðgerð
- Viðskiptakerfi með losunarheimildir ETS (flokkur H): 3 aðgerðir
- Landnotkun (flokkur I): 6 aðgerðir
Stöðuskýrslan sýnir að töluverður framgangur varð í aðgerðum milli ára.
Mat á framgangi aðgerða
- Í Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum eru settir fram mælikvarðar sem er ætlað að gefa mynd af því hvort aðgerðin sjálf skili árangri.
- Í stöðuskýrslunni 2021 er lagt mat á framgang aðgerða samkvæmt þessum mælikvörðum og það sett fram með myndrænum hætti.
- Næstu skref í þessari vinnu eru að setja mælikvarðana fram á aðgengilegri hátt hér á vefsíðu aðgerðaáætlunar, www.co2.is og greina og skilgreina áfangamarkmið til að tryggja enn betra yfirlit yfir árangur aðgerða.
- Í einhverjum tilfellum gæti reynst æskilegt að breyta mælikvarða, enda er aðgerðaáætlun í stöðugri vinnslu.
Áhrif á losun
- Á tveggja ára fresti skilar Umhverfisstofnun spá um losun gróðurhúsalofttegunda til Evrópusambandsins. Stofnunin skilaði fyrstu skýrslunni árið 2019.
- Á árinu 2022 verður gefin út uppfærð losunarspá og um leið lagt nýtt mat á aðgerðir í aðgerðaáætlun. Vegna seinkunar á útkomu nýrrar eldsneytisspár sem inniheldur mikilvægar forsendur fyrir útreikningana, var ekki hægt að skila fulluppfærðri losunarspá árið 2021.
- Samkvæmt bráðabirgðatölum hefur orðið samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda undanfarin tvö ár, en kórónuveirufaraldurinn hafði þar áhrif sem kunna að ganga til baka.
Aðgerðir í loftslagsmálum
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.