Samstarfsvettvangur fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis á Íslandi
Eyvör - National Coordination Centre Iceland (NCC-IS)
Eyvör (NCC-IS) er samstarfsvettvangur fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis á Íslandi. Markmið samstarfsins er að efla netöryggisgetu á landsvísu og styða við íslenskt netöryggissamfélag sem og að tryggja öflugt Evrópusamstarf á sviði netöryggismála. Eyvör er stofnað á grundvelli reglugerðar ESB 2021/887 og mun vinna í nánu samstarfi við Hæfnisetur Evrópu í netöryggi (e. European Cybersecurity Competence Centre – ECCC).
Eyvör mun markvisst styðja við íslenska aðila úr atvinnulífinu, rannsóknasamfélaginu og hinu opinbera í að efla rannsóknir og auka hæfni, þekkingu og þróun á sviði netöryggis. Eyvör mun m.a. sjá um rekstur sérstaks samkeppnissjóðs á sviði netöryggismála og auðvelda íslenskum hagsmunaaðilum aðgengi að alþjóðlegum sóknarfærum.
Með sameiginlegu átaki samstarfsaðila getur Eyvör, með nauðsynlegri stjórnsýslugetu, aðgangi að tækni og sérfræðiþekkingu atvinnulífsins sem og rannsóknasamfélagsins, byggt upp og stutt við skilvirkt þekkingarsamfélag á sviði netöryggismála á Íslandi.
Stjórn
- Jón Vilberg Guðjónsson, skrifstofustjóri framkvæmda og stjórnsýslu hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu
- Sigurður Óli Sigurðsson, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði hjá Rannís
- Einar Mantyla, forstjóri Auðnu
- Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, forseti samfélagssviðs HR
- Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu
Stýrihópur
Hópur aðila frá öllum samstarfsaðilunum. Stýrihópurinn fundar einu sinni á mánuði til að ræða verkefni sem eru í vinnslu innan í Eyvör. Haldnar eru fundargerðir eftir hvern fund og samþykktar af fundarmönnum. Staða á verkefnum og styrktarbeiðnir eru teknar fyrir á fundum stýrihópsins.
Leiðbeinandi hópur
Hópur innan íslenska netöryggissamfélagsins, gefur ráð til NCC um þarfir, stefnur og þróun í kringum netöryggi. Þessir aðilar geta ráðið til sín erlenda sérfræðinga til skrafs og ráðagerða. Hópnum er stýrt af Auðnu og hittist hann a.m.k. tvisvar á ári.
Kemur síðar.
Gagnlegir tenglar
Frá Evrópusambandinu
Fréttir
- Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðVaranlegur stuðningur við verðmætasköpun framtíðar22. 04. 2024
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.